Túbusjónvarpið
Gamalt íslenskt sjónvarpsefni af upptökuspólum: auglýsingar, fréttir, beinar útsendingar og sjaldséð efni af ýmsu tagi. Af og til eru einnig birt myndbönd af erlendum sjónvarpsrásum sem voru tekin upp á Íslandi samkvæmt dagskrá.
Skilyrði rásarinnar er að allt myndefni sé rétt dagsett, eða eins nákvæmlega og unnt er í sögulegu samhengi, og að fram komi hvar og hvenær efnið var sýnt á dagskrá. Myndefni sem birt er á rásinni endurspeglar ekki skoðanir eða hugmyndafræði stjórnanda hennar.
Á rásinni eru birtar ýmsar heimildamyndir og þættir frá árunum 1980–2010 um íslenska sögu, sem nýtast vel í námi og kennslu. Nánast allt efni er dagsett og rekjanlegt með heimildum, meðal annars á timarit.is.
Rásin er rekin án hagnaðarsjónarmiða í þágu sögulegrar varðveislu. Allt efni er í eigu upprunalegra rétthafa og enginn hagnaður er tekinn af birtingu þess á YouTube. Allt myndefni er af upptökuspólum af sjónvarpsútsendingum og ekkert efni er fengið úr söfnum RÚV eða annarra sjónvarpsstöðva.
Vlog / 라이프스타일
엔터테인먼트
교육
퍼포먼스 요약
일일 평균 조회수
(Shorts)
일일 평균 조회수
(롱폼)
영상별 평균 조회수
(Shorts)
영상별 평균 조회수
(롱폼)
채널 알고리즘 스코어
시청자 참여도
구독자 활성도